Arna röflar
Hestar og dýr
Klukkan
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
16.04.2007 18:48:08 / arna

Ekki dauð ennþá

hæ hæ

Hér með tilkynnist að ég er enn lifandi þrátt fyrir bloggleysi á þessari síðu :lol:

er farin að nota hina síðuna sem er www.123.is/arnaoghogni

 

Verið velkomin þangað

kveðja Arna  :haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.03.2007 01:49:13 / arna

Flensa /æfingar

Góða kveldið góðir hálsar og hinir líka sem eru með flensuna :)

jæja nú er frúin komin með keppnisbakteríu :S  keppti um síðustu helgi og gekk bara vel og skráði mig í kvennatölt hjá Gusti núna á laugardaginn.  Það er 29 konur skráðar í mínum flokk þannig að allt fyrir ofan 29 sæti er sigur 8) :lol:

Er alla vega komin upp í 2 stafa tölu með "útreiðar" flestar þó í höllinni sko mig bara dugleg stelpa:S

Það var tekið líka þetta flotta video á Andvara mótinu ætla að reyna komast til tengdó til að setja það inn á 123 síðuna mína þannig að allir geti séð dýrðina (ég og Mundi þó aðallega hann)

Nóg að gera á þessu heimili þarf að skreppa í bæinn í fyrramálið og ná mér nýja písk og þyngingar á Munda og svo er það klipping eftir hádegi, þá vonandi smá æfing á Munda og síðan er það rúsínan í pylsuendanum folaldasýning annað kvöld (föstudag ) í höllinni. Gaman að sjá öll þessi litlu krýli hlaupa um dragandi eigendurnar á eftir sér :lol::lol::lol:

 

Fór óvart inn á HÍ siðuna og viti menn voru ekki að verða síðustu forvöð að skrá sig svo ég skellti mér í það  tek 17 ein fyrir jól og 15 ein eftir jól 8| Með þessu áframhaldi næ ég að klára um sextugt :evil: :cry:

Nú styttist óðum í að litli bróðir hann Dóri verði fermdur en það verður á sunnudaginn kemur,  á ekki von á öðru en þetta verði rosa flott veisla og allir hafa gaman að hittast :)

jæja læt þetta duga í bili

Verið góð við hvert annað því við vitum ekki hvenær okkar /annarra tími er kominn

knús og kossar

Arna 


» 7 hafa sagt sína skoðun

25.03.2007 22:19:12 / arna

Sunnudagsskýrsla

Komið heil og sæl :lol: dúllurnar mínar

Ég var víst búin að lofa smá skýrslu um hestabröltið í mér og kemur hún hér.

Skráði mig á Opið kvennatöltsmót í Andvara sem var haldið síðasta föstudag.  Þar var enginn byrjendaflokkur svo ég keppti bara í konur ll.  Þar þarf maður að sýna hægt tölt, tölt með hraðabreytingum og svo yfirferðartölt (greitt tölt) var reyndar ekkert farin að æfa fyrir svona dæmi en lét slag standa 8) prófaði hraðabreytingar á miðvikudagskvöldið í fyrsta sinn og gekk sæmilega, komst svo ekki á bak aftur fyrr en á mótinu :|

En hvað um það stóð mig víst bara nokkuð vel (eða ætti kanski að segja að Mundi hafi staðið sig vel  :)  )  lenti í 14-15 sæti af 18 keppendum nokkuð gott svona í fyrsta skiptið og bara búin að fara 6 eða 7 skipti á hestbak síðan við tókum inn :P Þannig að eins og Högni segir þú ert bara nýgræðingur í þessu elskan mín  :haha:  Hann er bara nokkuð montinn af sinni konu.

Í dag var svo Kristjana Vigdís þessi dúlla fermd vorum þar í rosa veislu í allan dag, borða helling og kjafta enn meira :lol: :lol:

Stefni á aðra keppni um næstu helgi þá er Opið kvennatölt hjá Gusti hækka kanski um einhver sæti ef ég er dugleg að æfa þessa vikuna  8) aldrei að vita :$ 

Annars lítið að gerast, allt svona við það sama hérna í þessu heimili.  Nóg að gera um næstu helgi mót á laugardegi og Dóri bróðir fermist á sunnudeginum :)  Þannig að maður getur ekki setið með hendur í skauti þessa vikuna.  Heldur verða æfingar með Munda á hverjum degi

jæja læt þetta duga í bili

knús og kossar

Arna


» 6 hafa sagt sína skoðun

18.03.2007 10:20:49 / arna

Sunnudagur til sælu

Góðan daginn góðir hálsar  :haha:

Héðan er allt ágætt að frétta. Verslunarferðin til Reykjavíkur gekk bara nokkuð vel en tók aðeins lengri tíma en ég átti von á svo ekki náðist að gera allt,:S   þannig að ég fer aftur á þriðjudaginn og ætti þá að ná að klára listann 8)

Kom ekki til baka fyrr en 5 mín fyrir Karlatöltmótið þannig að ég missti af hluta af forkeppninni hjá minna vönum :(  en það kom ekki mikið af sök  mínir menn komust allir í úrslit :)

Ég held að það teljist nokkuð gott að þessir 4 karlmenn sem eru í húsinu unnu allir til verðlauna :) :)  Högni lenti í 5 sæti í sínum flokki þannig að maður getur ekki verið annað en alsæll með þetta.  Högni var reyndar á lánshesti sem hann fékk kvöldinu áður og hafði ekki prófað hann neitt nema smá þarna á fimmtudagskvöldinu þegar hann var sóttur austur

Ég bara ógo stollt af mínum manni ( og hinum mönnunum mínum líka;)    )

Fór sjálf í gær á bak til að prófa hvernig gengi og það var rosa gaman nú þarf bara að ákeða sig fyrir þriðjudag hvort maður skelli sér ekki í keppnina 8| 

Gef skýrslu um það síðar

heyrumst síðar knús og kossar

Arna


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.03.2007 01:24:35 / arna

jæja jæja

 Héðan er lítið að frétta nema endalausar fermingarveislur á næstunni ( Guð hvað ég er fegin að vera búin að þessu :D  ) 

Lítið búin að fara á bak síðustu vikur en er búin að panta höllina x2 í næstu viku þannig að ég get æft mig í friði og ró :lol: .  stefni að því að taka  þátt í kvennatöltinu um aðra helgi en ekki búin að gera upp við mig á hvaða hesti ég verð á líklega verður þó dúllan hún Von fyrir valinu :D því hún er bara frábær og gerir allt (eða næstum því ) sem ÉG bið hana um að gera.  :haha:

Högni stefnir á að keppa í karlatöltinu annað kvöld svo það er nóg að gera á þessu heimili við að stússast í hrossum en það er nú bara þannig að það einn af þeim hlutum sem gefur lífinu gildi alla vegana í þessari fjölskyldu.

Er að spá í að skreppa í höfuðborgina á morgun kíkja aðeins í búðir og þá aðallega hestabúðir og föndurverslanir  (eins og það sé eitthvað nýtt ;)  )

jæja nóg í bili ætla að fara að skríða í rúmið

knús og kossar

Arna


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.03.2007 09:52:46 / arna

Góðir dagar

hæ hæ

Loksins eru smá góðar fréttir af sýkingaveseni mínu  7-9-13   8|

Búin á fúkkalyfjunum sýkingarnar búnar og næstum gróið það sem skorið var  þannig að ég sé fram á að komast jafnvel á bak um helgina  :) :) :) Ekkert smá gaman, vona bara að veðrið verði þokkalegt 8)  þó mér sé í raun sama bara ef ég kemst á bak. 

jæja er að hugsa um að fara á smá húsaflakk heyrumst síðar

farið vel með ykkur og njótið lífsins (til þess er það ;)  ;)

Arna  


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.03.2007 09:57:07 / arna

Dóri á afmæli

jæja nú er runninn upp 3 mars og Dóri bróðir á afmæli, Til hamingju með það elsku strákurinn minn og stutt í ferminguna það er nóg að gera hjá honum.  :haha:

Enn og aftur Dóri TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN:lol:

knús og kossar Arna

$Aƙ㨸Ϣ⼺椯慭敧⹳潧杯敬椮⽳浩牧獥椿杭牵㵬瑨灴⼺洯⵸潦潴献⽥畨摮牡瘭硡潨浬樮杰椦杭敲畦汲栽瑴㩰⼯硭昭瑯⹯敳☯㵨㤴☶㵷〷☲穳㈽㜵栦㵬獩猦慴瑲㌽☴扴楮㵤扑穰䭈晘扸剂䵹☺扴桮㤽☹扴睮ㄽ〴瀦敲㵶椯慭敧╳䘳╱䐳畨摮牡㈥猶慴瑲㌥㉄┰㘲执╶䐳┲㘲摮灳㌥㉄┰㘲汨㌥楄╳㘲慳敦㌥慄瑣癩╥㘲慳㌥乄㌀楄st $ƥ

» 4 hafa sagt sína skoðun

26.02.2007 19:26:17 / arna

ekki leið heldur grautfúl

hæ hæ

Mannaði mig í að fara til læknis því er nú andskotans verr :evil:

ígerðin opnaðist að sjálfu sér en svo fór Dr að kreista og ég lá þarna og grenjaði eins og smákrakki.  var sett á fúkkalyf og ekkert smá skammt af þeim vonandi virkar það.  Á að mæta aftur á morgun í skiptingu, vonandi gengur það eitthvað betur

en hvað um það bið að heilsa í bili

Vælukjóinn :( Arna


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.02.2007 10:28:48 / arna

orðin leið

hæ hæ

Í augnablikinu er ég ekkert smá fúl (búin að vera það síðan á fimmtudag)  þá voru 4 vikur frá því að ég var skorin síðast og gekk þá allt á afturfótunum.  ógeðslegir verkir, sturtblæðing og svo mætti lengi telja, en ég huggaði mig við það að nú fengi ég frí alla vegana í nokkrar vikur!!!!

En þær vikur fóru bara í það að láta draslið gróa ég er byrjuð aftur og núna þannig að ég get varla hreyft mig :klikk:

Er að reyna að manna mig upp í að fara og tala við lækni og elskuna hann Jón hjúkku á slysó um hvort eitthvað sé hægt að gera því þetta versnar bara

Búin að fá mig meira en fullsadda af þessu helv.....:evil: :^)

kv Arna


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.02.2007 10:34:33 / arna

hæ hæ

Í gær var Hlynur frændi jarðaður.  Rosalega falleg athöfn, svona létt og fín eins og hægt er undir þessum kringumstæðum.  Hans er auðsjáanlega sárt saknað bæði af fjölskyldu og stórum vinahóp.  Guð blessi minningu góðs drengs.  Annars var yndislegt að hitta fólkið sitt þarna reyndar aðeins talað um það að við þyrftum að fara hittast öðru vísi en bara við jarðafarir. :S

 

En af öðrum málum þá eins og áður hefur komið fram ætlum við hjónin í "sukk" ferð til Benidorm.  Förum 28 júní og komum heim þann 12 júlí (ef ég man rétt)  verðum á hotel Vinja del Mar, þannig að það er stutt á alla barina, ætli maður verði ekki að fara í meðferð þegar við komum heim he he :lol:     Spáði ekkert í því hvernig hitastigið væri á þessum tíma en það hefur bara sinn gang,  gæti verið að maður kæmi svolítið mikið grillaður heim 8)

Annars er allt ágætt að frétta héðan af þessum bæ Högni fékk reyndar flensuna en verandi eins og hann er hélt hann áfram að vinna (það var ekki fyrir neitt sem pabbi talaði alltaf um að Högni hefði komið úr hömrunum fyrir vestar) svo virðist ég reyndar vera að fá eitthvað en vonandi er það bara hor og lætur þar staðar numið. 

Kær kv Arna


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.02.2007 17:41:28 / arna

þá er það ákveðið

Jæja þar kom að því að við tókum ákvörðun um sumarið.  Förum til Benidorm og verðum þar í 2 vikur í leti og sælu.

Sprengidagur í dag þannig að verði ykkur að góðu  :)

 Kveðja Arna


» 7 hafa sagt sína skoðun

17.02.2007 02:31:27 / arna

Sumarfrí

hey hey

Er aðeins farin að spá í sumarfríi og er að velta fyrir mér að dobbla Högna á sólarströndu :^)

Þið sem hafið farið og hafið meira vit á þessu en ég hvert á maður að fara til að liggja í leti og skoða sig um þess á milli?

Vil gjarnan fá sem flest komment  HVAÐ ER ÞETTA HEFUR ENGINN SKOÐUN Á MÁLINU???''

Spurning um að fara í júní /júlí og vera í viku eða fara í lok ágúst / sept og vera í tvær

sýnið nú lit og aðstoðið mig við erfitt val

kv Arna


» 7 hafa sagt sína skoðun

14.02.2007 19:09:46 / arna

Frændi kvaddur

Sá sorgaratburður átti sér stað í síðustu viku var að frændi minn lést í bruna í Svíþjóð.  Hann hét Hlynur og var sonur Konráðs sem er svo sonur Eggerts (afi í kjallaranum eins og Magnús Ingi kallar hann) sem sagt afi minn Ingólfur var bróðir Eggerts afa Hlyns.  Ég vil votta aðstandendum Hlyns alla mína samúð á þessum erfiðum tímum.

 hægt er að sjá mynd af Hlyn undir ættingjar

Guð blessi minningu góðs drengs

kveðja Arna


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.02.2007 09:55:47 / arna

Góður dagur í dag

heil og sæl kæru vinir nær og fjær

Í dag getur ekki verið annað en mjög góður dagur því Geira mágkona þessi líka litli snillingur og amma hans Högna eiga afmæli í dag.  Innilegar hamingjuóskir báðar tvær.

Annars lítið að gerast á þessum bænum nema þetta venjulega þvo þvott og strauja, þurrka af og ryksuga og svo frh. :whut:  Held að flestir kannist við þessa rullu :evil:

Er búin að vera í sáraumbúðaskiptum núna annan hvern dag og verið ýmsar kúnstir við það allt frá því að fá ekkert, svo glaðloft :lol:, síðan pet og fen í æð og glaðloft , og nú síðast bara pet og fen (skil ekkert af hverju það fæst ekki í ríkinu :klikk: ) Varð svo asskoti vel full langt fram eftir degi og engin þynnka daginn eftir.  Var reyndar rekin í rúmið  af mömmu með harðri hendi og svaf svo bara. En svona er lífið :haha:

með kveðju og ósk um að allir verði nú góðir við alla

Arna


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.02.2007 15:47:38 / arna

Eymd og volæði

hola hola héðan er lítið að frétta. Konan ansi gotótt eftir síðustu aðgerð en er öll að koma til. Sé samt ekki fram á að komast á hestbak fyrr en eftir 2-3 vikur ,snökt snökt. Svanni kom í gær með nýjasta fjölskylsumeðliminn hjá þeim og heitir hann Snati algjört krútt en svolítið mikil nagari en á eftir að koma vel til með réttu uppeldi verður eflaust alveg frábær félagi er ljúfur í sér og hið besta skinn. Eins og sumir vita er ég í HÍ og vantar aðstoð hún felst í því að þið sendið mér brandara og segið mér hvar þið heyrðuð þá og ykkar álit á þeim og auðvitað ´þarf ég brandarana líka. Við hvaða aðstæður þeir voru sagðir innan hvaða hóps og svo framvegis Er svolítið á eftir vegna aðgerðarinnar og erfiðleika við að komast innan um fólk nánari upplýsingar seinna kveðja Arna

» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Dagsetning
10. febrúar 2012
Fer�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?�š�?�??�?° til Glas
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1659 dögum
Sumarfr�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?�š�?�??�?­ �?�?
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1688 dögum